1993
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 1. janúar - Tékkóslóvakía skiptist í tvö ríki, Tékkland og Slóvakíu.
- 13. janúar - Samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði (EES) var staðfestur á Alþingi.
- 20. janúar - Bill Clinton tók við af George H. W. Bush sem forseti Bandaríkjanna.
- 26. janúar - Václav Havel var kosinn forseti Tékklands.
- 26. febrúar - Bílasprengja sprakk undir World Trade Center í New York-borg.
- 28. febrúar - Bandarísk yfirvöld réðust inn á búgarð í Waco, Texas til að handtaka David Koresh. Fjórir opinberir starfsmenn og sex fylgismenn Koresh dóu í átökunum sem fylgdu. 51 dags langt umsátur um búgarðinn hófst.
- 3. mars - Stofnfundur Flatar, samtaka stærðfræðikennara á Íslandi.
- 22. mars - Intel setti fyrsta Pentium örgjörvann á markað.
- 27. mars - Jiang Zemin tók við sem forseti Kína.
- 23. apríl - Stærstur hluti bátasafns Þjóðminjasafns Íslands brann í skemmu við Vesturvör í Kópavogi.
- 28. apríl - Alþingi Íslands samþykkti aukaaðild landsins að Vestur-Evrópusambandinu.
- 30. apríl - Alþingi samþykkti fyrstu stjórnsýslulög á Íslandi þar sem kveðið var á um meginreglur opinberrar stjórnsýslu. Meðal þess sem var lögfest voru jafnræðisreglan og andmælaréttur við meðferð opinberra mála.
- apríl - Ísland: viðskipti við Suður-Afríku voru heimiluð á ný.
- 14. júní - Breyting á ríkisstjórn Íslands: Jóni Sigurðssyni og Eiði Guðnasyni var veitt lausn frá ráðherraembættum sínum og í stað þeirra tóku við Guðmundur Árni Stefánsson og Össur Skarphéðinsson, einnig var Sighvatur Björgvinsson fluttur til í embætti.
- 12. ágúst - Fyrsti íslenski togarinn hélt til veiða á alþjóðlegu hafsvæði í Barentshafi, svokallaðri Smugu.
- 4. ágúst - Alríkisdómari dæmdi tvo lögreglumenn frá Los Angeles í 30 mánaða fangelsi fyrir ad brjóta á réttindum Rodney King.
- 1. nóvember - Maastrichtsáttmálinn tók gildi og þar með varð Evrópusambandið formlega til.
- 16. nóvember - Gvæjana var 60. ríkið sem undirritaði hafréttindasamning Sameinuðu þjóðanna og þar með voru öll skilyrði fyrir staðfestingu hans uppfyllt.
- 2. desember - Pablo Escobar var skotinn til bana í Medellin.
- 6. desember - Debetkort voru tekin í notkun á Íslandi.
[breyta] Fædd
- 26. júlí - Taylor Momsen, bandarísk leikkona.
[breyta] Dáin
- 6. janúar - Dizzy Gillespie, bandarískur jazz trompetleikari (f. 1917).
- 20. janúar - Audrey Hepburn, leikkona (f. 1929).
- 31. mars - Brandon Lee, bandarískur leikari (f. 1965).
- 19. júní - William Golding, breskur rithöfundur (f. 1911).
- 31. júlí - Baldvin Belgíukonungur (f. 1930).
- 31. október - Federico Fellini, ítalskur leikstjóri (f. 1920).
- 31. október - River Phoenix, bandariskur leikari (f. 1970).
- 1. nóvember - Severo Ochoa, spænskur og bandarískur lífefnafræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1905).
- 2. desember - Pablo Escobar, kólumbískur eiturlyfjabarón (f. 1949).
- 4. desember - Frank Zappa, bandariskur tónlistarmaður (f. 1940).
- 31. desember - Zviad Gamsakhurdia, forseti Georgiu (f. 1939).