1928
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
[breyta] Á Íslandi
- 29. janúar - Slysavarnafélag Íslands stofnað.
- 20. apríl - Mæðrastyrksnefnd stofnuð.
- 7. maí - Lög samþykkt á Alþingi um að stofnaður skyldi þjóðgarður á Þingvöllum.
- 11. nóvember - Iðnskólinn í Hafnarfirði stofnaður.
- Hvítárbrú við Ferjukot vígð.
Fædd
- 11. apríl - Gerður Helgadóttir, myndhöggvari (d. 1975).
- 20. maí - Sigfús Daðason, ljóðskáld (d. 1996).
- 22. júní - Steingrímur Hermannsson, verkfræðingur og stjórnmálamaður (d. 2010).
- 11. október - Jón Ásgeirsson, tónskáld.
- 8. nóvember - Haukur Clausen, frjálsíþróttakappi og tannlæknir (d. 2003), og Örn Clausen, frjálsíþróttakappi og lögfræðingur (d. 2008).
- 30. desember: Stefán Aðalsteinsson, doktor í búfjárfræðum.
Dáin
- 26. september - Gísli Guðmundsson, íslenskur gerlafræðingur og frumkvöðull (f. 1884).
[breyta] Erlendis
Fædd
- 5. janúar - Zulfikar Ali Bhutto, forsætisráðherra Pakistan (d. 1979).
- 27. febrúar - Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels.
- 6. mars - Gabriel García Márquez, kólumbískur rithöfundur, blaðamaður og Nóbelsverðlaunahafi
- 4. maí - Hosni Mubarak, forseti Egyptalands.
- 13. júní - John Forbes Nash, bandarískur stærðfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi.
- 14. júní - Che Guevara, byltingarmaður og einn af hershöfðingjum Fidel Castro (d. 1967).
- 22. júní - Steingrímur Hermannsson, fyrrum forsætisráðherra Íslands (d. 2010).
- 26. júlí - Stanley Kubrick, bandarískur kvikmyndaleikstjóri (d. 1999).
- 26. júlí - Francesco Cossiga, forseti Ítalíu.
- 7. desember - Noam Chomsky, bandarískur málvísindamaður og rithöfundur.
- 8. desember - Ulric Neisser, bandarískur sálfræðingur.
Dáin
- 4. febrúar - Hendrik Antoon Lorentz, hollenskur eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1853).
- 18. júní - Roald Amundsen, norskur landkönnuður (f. 1872).
[breyta] Nóbelsverðlaunin
- Eðlisfræði - Owen Willans Richardson
- Efnafræði - Adolf Otto Reinhold Windaus
- Læknisfræði - Charles Jules Henri Nicolle
- Bókmenntir - Sigrid Undset
- Friðarverðlaun - Voru ekki veitt þetta árið